Landamæradeilur við kína

Kína hefur ráðist í mannvirkjagerð á hásléttu á landssvæði sem Indland segir tilheyra konungsríkinu Bútan. Tvö smáríki í Himalaya fjallendinu í norður og norð-austur frá Indlandi Bútan og Sikkím eru undir vernd Indlands.

Stjórnvöld á Indlandi hafa áratugum saman fylgt þeirri stefnu að árásir á þessi tvö verndarríki mundu teljast árásir á Indland. Nú má vera að reyna muni á hvort þessi stefna Indlands er með öllu marklaus sökum vanmáttar og viljaleysis indverskra stjórnvalda til að stöðva Kínverja.

Ástralskur þankatankur hefur gefið út ritgerð um þennan vanda Indlands. Meðan athygli Asíþjóða er á Norður-Kóreu neyta Kínverjar færis og hefja mannvirkjagerð á konungsríkinu Bútan sem ekki fær við neitt ráðið og leitar því á náðir Indlands. Pakistan færi sér í nyt að Indverjar horfa til Kína fremur en til Pakistan.

Indverjar mega nú reyna þau sannindi að það er ekki á valdi einnar þjóðar að koma á friðsamlegri sambúð við Kína og háleit markmið fyrrum leiðtoga Indlands um slíka sambúð virðast nú dauð.

Margir indverskir ráðamenn vakna til vitundar um hættuna af útþenslustefnu Kína á noður og austur landamæurm Indlands. Þetta er örlagarík reynsla sem getur orðið til þess að Indverjar líti með meiri skilningi en áður á viðhorf þeirra Vesturlanda til útþennsluáforma Kína á sjó og á landi í Asíu og vantreysti meira en áður orðum Kínverja.

[email protected]

Nánar www.lowyinstitute.org