„Þetta er þingkonan sem rústaði Strætó sem stjórnarformaður þess fyrirtækis. Tók sjálfur viðtal við hana fyrir Reykjavík vikublað vegna einkavæðingastefnu hennar og fyrrverandi framkvæmdastjóra Strætó. Sú stefna hafði búið til tvískipt fyrirtæki þar sem verktakar borguðu bílstjórum svo skelfileg laun að yfirstjórn Strætó notaði einkavæðingu sem svipu á fólk ef það barðist fyrir betri kjörum.“ Þetta segir Atli Þór Fanndal, ráðgjafi og fyrrverandi blaðamaður, á Facebook síðu sinni í dag um Bryndísi Haraldsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins.
Bryndís segir í færslu á Facebook að hún skilji ekki af hverju ríkið eigi flutningafyrirtæki og hægt sé að bjóða þjónustu Íslandspósts með útboði sem einkaaðilar geta boðið í.
„Mikið er ég sammála og þó fyrr hefði verið segi ég nú bara. Ég skil ekki af hverju ríkið á flutningafyrirtæki. En það er það sem Íslandspóstur raunverulega er. Ég átta mig á því að það er ekki virk samkeppni í öllum þeim þjónustuþáttum sem Íslandspóstur veitir og auðvitað þurfum við að tryggja dreifingu um land allt. Það er hægt að gera með útboði þar sem einkaaðilar geta leitað hagkvæmustu og bestu leiðanna til að veita góða þjónustu á þess sviði,“ segir Bryndís
Í færslu sinni birtir Atli brot úr viðtali sem hann tók við Bryndísi árið 2014, fyrir Reykjavík vikublað, þegar hún var framkvæmdastjóri Strætós BS.
Eruð þið í stjórn meðvituð um að þegar þið takið akstur í útboð að ein af afleiðingum þess er að laun starfsmanna á gólfi lækka miðað við laun í sambærilegu starfi hjá Strætó bs.?
„Útboð eru í eðli sínu gerð til að ná fram hagræði í rekstri. Það er alveg ljóst að ekinn kílómetri í útboðnum akstri er lægri en ekinn kílómetri í okkar eigin akstri. Þannig að við erum bara sem stjórn að gæta hagsmuna eigenda og sjá til þess að hægt sé að reka Strætó með sem hagkvæmasta hætti,“ sagði Bryndís.
Þú ert þá að segja að þið eruð meðvituð um það að hluti kostnaðarins við hagræðingu er borinn á herðum óbreyttra starfsmanna Strætó í formi verri starfskjara?
„Já, ég þekki bara ekki þær tölur. Ég veit bara að einkaaðilar hafa getað gert þetta með hagkvæmari hætti en við.“
Atli Þór segir að einnig að það komi honum ekki á óvart að Bryndís blási í herlúðra einkavæðingarinnar.
„Mikið er það mátulegt á VG að verða þau sem einkavæða póstinn svona eftir að pólitískir agentar (Svanhildur Hólm) hafa árum saman unnið að því innandyra að rústa fyrirtækinu til að hægt sé að gefa það. Sjálfstæðisflokknum er að takast það plan sitt að leggja hreinlega niður landsbyggðina. Það kemur mér því ekkert á óvart að hún Bryndís sé sú sem blæs í herlúðra einkavæðingar.“