Atli Rafn Sigurjónsson leikari var mættur í héraðsdóm Reykjavíkur í morgun. Þar fór fram aðalmeðferð í máli hans gegn Leikfélagi Reykjavíkur og Kristínu Eysteinsdóttir, borgarleikhússtjóra. Atli fer fram á 10 milljónir í skaðabætur fyrir að hafa verið rekinn í desember 2017 vegna ásakana um kynferðislega áreitni og ofbeldi. DV fjallaði um málið.
Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri, sagði við RÚV: „Ég var að bregðast við beinum tilkynningum, meðal annars frá starfsfólki, sem hafa borist beint til leikhússtjóra. Leikhússtjóri, framkvæmdastjóri og stjórn Leikfélags Reykjavíkur voru einhuga um þessa ákvörðun og hún var tekin eftir mikla yfirlegu og að vandlega ígrunduðu máli.“
Atli var boðaður á fund þann 16. desember 2017 en þar var honum sagt upp störfum. Á fundinum var Atla Rafn greint frá því að alvarlegar ásakanir um áreitni og ofbeldi hefðu borist á hendur honum. Því hafi verið ákveðið að segja honum upp störfum og draga hann úr öllum verkefnum. Atli Rafn sagði:
„Þetta kom algjörlega flatt upp á mig á þeim tíma og gerir enn. Ég þekki ekki til neinna atvika og hef verið haldið í algjöru myrkri [...] Mín viðbrögð voru einfaldlega þau að ég hef aldrei verið jafn hissa á ævinni.“
Aðspurður hver hefðu verið viðbrögð Kristínar, hafði Atli þetta að segja:
„Kristín tjáði mér að henni leið sérstaklega illa og hefði verið komin að því að kasta upp nokkru sinni um morguninn.“ Þá bætti Atli við:
„Eftir að Metoo byltingin hófst, þar voru bara gefnar út nýjar leikreglur og ég hugsaði: „Já, aumingja konan hún getur ekki gert neitt annað en að reka mig á staðnum.“
Þegar lögmaður spurði Atla hvort hann hefði kannast við sjálfan sig í í einhverri af þeim frásögnum sem birtust frá konum í Sviðslistum í Stundinni í tengslum við MeToo-byltinguna, svarar Atli játandi: „Mig óraði ekki fyrir að ég yrði andlag MeToo sagna en vaknaði við vondan draum þegar ég las í Stundinni lygasögu um sjálfan mig.“
Atli lýsti sögunni á þann hátt að hann hefði leikið í kvikmynd og í senunni voru tvær ungar leikkonur. Atli sagði: „Senan lýsir einhvers konar kynferðislegum athöfnum, við erum á nærfötum og erum að drekka.“ Leikstjórinn vildi hafa alvöru áfengi við hönd, en þá kom á daginn að önnur stúlkan átti við áfengisvandamál að stríða. „Allir sýndu því fullt tillit og það var hellt upp á sódavatn fyrir hana. Þar gerðist ekkert sem var ósæmilegt eða gat orkað tvímælis að nokkru leyti. Nema í þessari MeToo sögu les ég mér til mikils hryllings að ég hafi átt að vera blindfullur og rekið upp í hana tunguna.“ Þá hélt Atli fram að þetta mætti rekja til dóttur áhrifamanns og kollega í Borgarleikhúsinu. Atli sagði:
„Ég vil aðeins nefna það að ég var þarna um haustið 2017 að vinna í Borgarleikhúsinu og varð þess strax áskynja þegar ég byrjaði að vinna þarna að það væri eitthvað ekki í lagi. […] Pabbi hennar er mjög handgenginn leikhússtjóranum og þau heilsa mér ekki“.
Þá sagði Atli að málið hefði haft gríðarleg áhrif á líf hans og líðan. Atli lýsti því á eftirfarandi hátt: „Það hefur ekki liðið dagur síðan þetta kom upp að ég hafi ekki hugsað um þetta.[...] Ef ég er ekki sjálfur að hugsa um þetta þá er einhver nákominn mér sem vill ræða þessi mál eða einhver bláókunn kona í kælinum í Bónus.“ Þá sagði Atli einnig:
„Mínar atvinnuhorfur eru í raun komnar í ruslflokk. Ég hef aldrei þurft að leita mér að vinnu í þessum bransa eins og ég hef áður sagt, ég hef valið mér verkefni, minn leiklistaferill stóð í miklum blóma þar til þetta gerðist.“
Nánar er fjallað um málið á vef DV.