Atli örvars: tónskáldið flytur frá la

Atli Örvarsson kvikmyndatónskáld hefur ásamt eiginkonu sinni og tveimur börnum tekið þá ákvörðun að stefna að búferlaflutningi til Íslands frá Bandaríkjunum.

Atli hefur starfað um langt skeið sem kvikmyndatónskáld í Los Angeles en ef allt gengur eftir mun hann flytja lögheimilið á ný til Akureyrar eftir nokkuð langan aðskilnað frá sinni gömlu heimabyggð. Atli er fæddur og uppalinn í höfuðstað Norðurlands, hann lauk prófi sem stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri, bjó um skeið í Reykjavík, var við Breklee College of Music í Boston og lauk þar BA námi. Var síðan í mastersnámi í kvikmyndatónlist við University of North Carolina School of the Arts. Þaðan fór hann í starfsþjálfun og eftir það til vinnu með Mike Post, helsta sjónvarpsþáttatónskáldi í Hollywood. Eftir það starfaði Atli með Hans Zimmer í Hollywood. Hann hefur sótt tekjur sínar til Hollywood síðustu áratugi og verður framhald á þeim störfum þrátt fyrir  flutninga heim til Íslands.

Eiginkona hans, Anna, er fædd og uppalin í Bandaríkjunum. Hún hefur fallið fyrir landinu í heimsóknum til Íslands allt frá þeirra fyrstu kynnum og hlakkar ekki síður en Atli til vistaskiptanna. Þar ræður miklu frelsi barnanna þeirra, víðáttan og öryggið. Atli segir ólíku saman að jafna hvað varði Akureyri og Los Angeles í þeim efnum. Flutningur til Akureyrar muni einnig hafa í för með sér mikinn tímasparnað fyrir alla fjölskyldumeðlimi, því hálfur dagurinn brenni upp í Borg Englanna vegna langra vegalengda og ýmissa ferðalaga fyrir útivinnandi foreldra með börn á skólaaldri. Atli og Anna eiga Sóleyju, 3ja ára og Óðin, sjö ára.

Atli hefur starfað í Bandaríkjunum sem kvikmyndatónskáld í Hollywood í rúma tvo áratugi. Hann hefur notið mikillar velgengni fyrir tónsmíðar sínar. Hann hefur bæði samið tónlist fyrir sjónvarpsþætti sem farið hafa um allan heim og alls hefur hann samið músík við 35 kvikmyndir. Af sjónvarpsþáttaröðum má nefna Chicago Fire, en serían sem nú fer í hönd er sú þriðja sem Atli vinnur að sem yfirtónskáld þáttanna. „Ég er svo heppinn að vera með  samstarfsmenn í stúdíóinu okkar í Los Angeles og með því að vera í sambandi við þá á það alveg að ganga að hafa atvinnu af tónlistarsköpun þarna vestra en búa hér, því maður semur tónlistina einsamall og 95% af mínum vinnutíma starfa ég í einrúmi. Með Internetinu á þetta þannig alveg að ganga en auðvitað verð ég töluvert á ferðalögum og þvælingi og konan mín sennilega líka, því hún er með eigin bissness sem innanhúss- og textílhönnuður,“ segir Atli.

Hann viðurkennir að bönd við ættingja og vini á Akureyri hafi einnig haft nokkuð um þá stefnu þeirra hjóna að gera að flytja frá Los Angeles til Akureyrar. Það sé snúið að halda sterkum tengslum við ástvini á Akureyri og annars staðar á Íslandi, búandi á vesturströnd Bandaríkjanna.  „Ég held kannski að það megi segja að ef það væru ekki börn í spilinu þá værum við Anna ekkert að þessu. Kannski hefðum við ákveðið að flytja til London ef við ættum engin börn en þessi fyrirhugaða ákvörðun snýst fyrir okkur um börnin.“

Atli segir leitun að barnvænni stað en Akureyri en viðurkennir að þar sé hann hlutdrægur! „Hér ólst ég upp og naut þess miög, frelsið og öryggistilfinningin er svo sterk. Mín reynsla var að hér væri frábært að alast upp og gott að búa dálítið fram yfir unglingsárin. Þá varð ég eirðarlaus og gat ekki um annað hugsað á tímabili en að koma mér burt. Svo get ég ekki hugsað mér annað núna en að börnin okkar fái að kynnast búsetu á þessum góða stað,“ segir Atli og hlær.

Atli þreytti nýverið frumraun sína sem tónskáld í íslenskri bíómynd, Hrútum eftir Grím Hákonarson. Hrútar fengu fyrr á þessu ári ein eftirsóttustu verðlaun heims í Cannes og hefur tónlist Atla hlotið einróma lof gagnrýnenda líkt og aðrir listrænir þættir myndarinnar.