Atli Helgason, lögmaður hefur dregið til baka kröfu sína um að öðlast lögmannsréttindi að nýju, en hann var sviptur þeim eftir að hann hlaut sextán ára dóm fyrir að myrða viðskiptafélaga sinn, Einar Örn Birgisson fyrir 15 árum.
Ósk Atla um að fá lögmannsréttindi sín að nýju eftir að hafa fullnustan dóm sinn og fengið uppreist æru vakti mikla athygli í upphafi árs, en margir reyndust þeirrar skoðunar að maður sem hlotið hefði þyngsta dóm fyrir jafn alvarlegt brot og morð er, gæti ekki ætlast til að starfa sem lögmaður með full réttindi á því sviði. Meðal þeirra sem galt varhug við því var faðir Einars Arnar heitins, Birgir Örn Birgisson sem sagði það vera lágmark að Atli ræddi við fjölskyldu hins látna og iðraðist gjörða sinna, en það fyndist honum hann ekki hafa gert.
Við aðalmeðferð málsins í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun las verjandi Atla upp tilkynningu sem var bókuð á eftirfarandi hátt:
\"Sóknaraðili, Atli Helgason, telur að starfsréttindi hans sem lögmaður séu minna virði en þjáningar aðstandenda sem umfjöllun um málið hefur endurvakið. Því hefur Atli afráðið að afturkalla að svo stöddu ósk sína um niðurfellingu réttindasviptingar.“