Atlantsolía í beina samkeppni við costco

Atlantsolía hefur ákveðið að hella sér útí samkeppni við Costco.

Atlantsolía selur frá deginum í dag bensín og dísilolíu á stöð sinni í Kaplakrika í Hafnarfirði á sama verði og bandaríski risinn gerir á sinni stöð ekki langt frá.

„Við afnemum alla afslætti og bjóðum upp á lægsta eldsneytisverð á landinu, án nokkurra skilyrða,“ segir Rakel Björg Guðmundsdóttir, markaðsstjóri Atlantsolíu í samtali við Fréttablaðið. Bensínlítrinn fer úr 211,9 í 189,9 krónur og dísillítrinn úr 204,3 krónum í 182,9 krónur.

„Við teljum okkur hafa svigrúm til að bjóða öllum þetta verð, núna, á þessari stöð án meðlimagjalda eða sérstakrar skráningar,“ segir Rakel.