Guðrún Ragna Garðarsdóttir, forstjóri Atlantsolíu, er gestur hjá Jóni G. í kvöld og segir frá eitilhörðu verðstríð við Costco á stöð Atlantsolíu í Kaplakrika. Félagið lækkaði verðið til jafns við það sem Costco býður upp. „Viðbrögðin er mjög góð og við getum ekki annað en verið ánægð,“ segir Guðrún Ragna. Sextán starfsmenn starfa hjá Atlantsolíu og stöðvarnar eru nítján. Undir stjórn Guðrúnar hefur Atlantsolía verið sigusæl í Íslensku ánægjuvoginni undanfarin átta ár.
Atlantsolía hjólar í costco í krikanum
Fleiri fréttir
Nýjast