Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna krefst þess að mannúðarsamtök fái aðgang að flóttamannabúðum Palestínumanna í Yarmouk í Sýrlandi. Þar dvelja um 18.000 manns við ómennskar aðstæður að sögn talsmanns Sameinuðu þjóðanna.
Stríiðsástand hefur varað í búðunum síðan ISIS hóf árásir á þær í byrjun þessa mánaðar. Árásirnar eru liður í baráttunni um höfuðborgina Damaskus, en flóttamannabúðirnar eru í nágrenni hennar. Palestínskir og sýrlenskir uppreisnarhermenn hafa leitt átökin úr flóttamannabúðunum gegn ISIS. Ekki hefur fengist leyfi til að flytja hjálpargögn til íbúanna síðan átökin hörðnuðu.
Ekkert lát er á átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs, en óbreyttir borgarar gjalda jafnan mest í árásum hinna ýmsu herflokka. Fjallað verður um málefni Palestínumanna og átökin í Miðausturlöndum í næsta þætti Heimsljóss sem er frumsýndur annað kvöld.