Þátturinn Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl. 22.00 en það er breyttur sýningartími frá því sem verið hefur og liður í endurskipulagðri heildardagskrá Hringbrautar. Í þættinum sem er sá fyrri at tveimur um þjálfunarsetur Icelandair í Hafnarfirði verður fræðst um þjálfun flugfreyja, flugþjóna og flugmanna og útskýrt hvernig áhafnir öðlast fullgild réttindi sem starfsmenn Icelandair. Icelandair hefur reist glæsilega byggingu við Flugvelli í Hafnarfirði þar sem áhafnir sitja á skólabekk og fá auk þess verklega þjálfun við raunverulegar aðstæður. Einnig verður viðtal við Hauk Reynisson yfirflugstjóra Icelandair þar sem ferlið að verða flugmaður er útskýrt. Í næsta þætti að viku liðinni verður fjallað um flugherminn sem Icelandair festu nýlega kaup á og er talinn fullkomnasti B-757 flughermir í heimi. Þáttastjórnandi sem fyrr er Sigurður K. Kolbeinsson og kvikmyndatöku annaðist Friðþjófur Helgason.