Átaldi þingmenn fyrir „fokk ofbeldi“ mótmæli

Bryndís Haraldsdóttir, varaforseti Alþingis, átaldi framgöngu Björns Leví Gunnarssonar og Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, þingmanna Pírata, á þingi í gær. Björn Leví og Þórhildur Sunna höfðu stillt sér upp við ræðustól Alþingis í gær með „Fokk ofbeldi“ húfur á höfði þegar Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, hóf ræðu sína um samgönguáætlun til fimm ára. RÚV.is greinir frá.

Í samtali við Mbl.is sagði Þórhildur Sunna um þögul mótmæli vera að ræða, og vísar þar væntanlega til þeirra orða sem Bergþór lét falla á Klaustursupptökunum. Á upptökunum var Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, m.a. kölluð öllum illum nöfnum og sagðist upplifa ummælin um sig sem ofbeldi.

Hvorki Bergþór né Brynjar Níelsson, sem stýrði fundum Alþingis þegar mótmælin áttu sér stað, gerðu athugasemd við athæfið. Þegar Bryndís tók við fundarstjórn af Brynjari sagði hún: „Forseti vill átelja framkomu háttvirtra þingmanna Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur og Björns Levís Gunnarssonar við upphafsræðu háttvirts þingmanns Bergþórs Ólasonar.“ Hún sagði atvik af þessu tagi ekki við hæfi og að á Alþingi tjái þingmenn sig úr ræðustóli.