Saga Þorsteins Theodórssonar og Theodóru, dóttur hans hefur vakið mikla athygli en hún kemur fyrir í nýju heimildarmyndinni Ránsfengur, Ransacked eftir Pétur Einarsson, fyrrverandi forstjóra Straums. Theodóra segir frá átakanlegri baráttu og að lokum sigri á Hringbraut í kvöld. Kl.21.
Theodóra segir frá sögunni á Hringbraut í kvöld en þau feðgin unnu mál gegn Landsbankanum í hæstarrétti en svipta átti Þorstein öllu ævistarfinu vegna gengisláns. Sex ára barátta þeirra tók þó sinn toll á margan hátt.
Myndin fjallar um efnahagsuppganginn hér og erlendis og svo efnahagshamfarirnar fyrir átta árum og - eftirmála þeirra. Í myndinni er skýrt frá mörgu, aðalleg því hvernig vogunarsjóðirnir vinna, hráskinnaleikinn þar umkring og hvernig stjórnendur sjóðanna er lítt sýnilegir en hafa úrslitaáhrif á líf venjulegs fólks.
Með sögu fjölskyldu Theodóru skiljum má skilja betur hvers konar efnahagshamfarir áttu sér stað hér heima og víðar og hvernig þær ógnuðu lífi og viðurværi fjölskyldna.
Þetta skall á fyrir átta árum og í myndinn sjáum við eftirmálana. Þar er skýrt frá mörgu, hvernig vogunarsjóðirnir vinna, hráskinnaleikinn og hvernig stjórnendur sjóðanna eru lítt sýnilegir en hafa úrslitaáhrif á líf venjulegs fólks.
Þorsteinn Theódórsson, sem er núna rúmlega áttræður, var einykri og missti fyrirtækið sitt eftir hrunið og næstum því líf sitt. Dóttir hans Theodóra Þorsteinsdóttir skráði sig þá í lögfræði og lögsótti Landsbankann sem var tilbúinn að svipta fjölskylduna öllu. Því lauk með sigrí í hæstarrétti. Eftir sex ára átakanlega baráttu.