Allnokkur hópur fólks hefur síðustu daga gert athugasemdir við framferði Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda. Ástþór hefur verið á ferð fyrir norðan í leit að undirskriftum fyrir forsetaframboð sitt og hefur því verið haldið fram að hann snapi undirskrifir hjá ungu fólki til stuðnings eigin framboði án þess að fólkið viti í öllum tilfellum nákvæmlega hvað það sé að styðja.
Júlíus Blómkvist Friðriksson, sem m.a. hefur skrifað greinar fyrir Kvennablaðið, upplýsir á eigin fésbókarsíðu að hann hafi séð Ástþór Magnússon forsetaframbjóðanda veiða undirskriftir til stuðnings eigin framboði hjá ölvuðu ungu fólki í miðbæ Akureyrar um helgina.
\"Sá Ástþór Magnússon á rölti um miðbæ Akureyrar að hössla undirskriftir af misfullu fólki. Ekki finnst mér þetta styrkja stöðu hans sem kandidat. Svo frétti ég af því að hann hafði farið inn á Café Amour, Árshátíð VMA og Backpackers. Má þetta bara?\" Spyr Júlíus.
Athugun sýnir að síðustu daga hefur allnokkur hópur fólks úr ólíkum áttum haldið fram efasemdum um aðferðafræði Ástþórs. Óljóst sé hvort þeir sem riti nöfn sín á stuðningsmannalista Ástþórs viti nákvæmlega hvað þeir séu að skrifa undir. Sigurlaug Hauksdóttir er ein þeirra sem hefur tjáð sig um málið á facebook. Sigurlaug segir að Ástþór hafi nýverið verið á ferli í Háskólanum á Akureyri við undirskriftasöfnun. \"En, það sem verra er að hann fór líka í bæði VMA og MA og safnaði undirskriftum þar,\" skrifar Áslaug og vísar þar til Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri. Báðir skólar eru einkum skipaðir ungu fólki.
Eftir því sem fram kemur hjá heimildarmanni Sigurlaugar eru dæmi um að framhaldsskólanemar hafi sagt eftir að þeir skrifuðu undir stuðning við framboð Ástþórs að þeir hafi talið sig verða að \"virkja Bessastaði\". Fleiri segja reynslusögur á þræði Sigurlaugar á facebook. Er staðhæft að á árshátíð um helgina hafi einn verið að safna undirskriftum og fengið slatta hjá drukknu fólki. \"Þetta er orðin skrípaleikur.\"
Hafdís Inga Haraldsdóttir kennari við Menntaskólann á Akureyri segir um skólaheimsóknir Ástþórs: \"Honum var á endanum vísað út úr VMA, eftir frekju og derring og stoppaður í dyrunum hér í MA svo hann vappaði eitthvað fyrir utan.\"
Egill Páll Egilsson segir: \"Èg frétti af honum fyrir utan ríkið í dag, einmitt að safna undirskriftum fyrir \"virkjum Bessastaði til friðar\" ekki minnst á meðmælenda lista.\"
Ástþór Magnússon segir í samtali við Hringbraut að undirskriftasöfun hans sé að klárast, hann sé búinn með Norðurland og Austurland en næst sé það Suðurlandið. Spurður hvort rétt sé að hann hafi villt á sér heimildir og að ungmenni styðji hann til forseta þegar þau telji sig vera að \"Virkja Bessastaði\" hlær Ástþór og segir af og frá að hægt sé að misskilja það þegar hann mæti í eigin persóinu að hann sé að falast eftir stuðningi til embættis forseta íslands. Spurður hvort rétt sé að honum hafi verið vísað út ú skóla á Akureyri vegna ágengni og að kastast hafi í kekki milli hans og skólayfirvalda, neitar Ástþór því. Hringbraut hefur sent skólayfirvöldum VMA fyrirspurn vegna málsins.
Upp kom fölsunarmál vegna framboðs Ástþórs árið 2012. Þá sagði Ástþór að hann hefði verið fórnarlamb falsara. Lesa má m.a. um sögu þess máls hér.