Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi staðhæfir að allir þeir sem hafi setið lengst sem þjóðhöfðingjar séu annað hvort þekktir fyrir glæpi eða fjármálamisferli. Ólafur Ragnar Grímsson sé í hópi hinna þaulsetnustu. Ástþór hafi farið að skoða viðskipti fjölskyldu Dorritar með demanta. Komið hafi á daginn að fjölskyldan eigi ekki síst samskipti við fólk með mikil völd, spillt fólk sem situr lengi á valdastóli. Hann hafi fundið upplýsingar um að einn af viðskiptavinum föður Dorritar hafi verið Imelda, sem átti 1.000 pör af skóm. Hún og eiginmaður hafi sogið eigið þjóðríki. Áhrifamenn sem hafi leitað til vændiskvenna hafi keypt demanta af Moussaieff fjölskyldunni til að greiða vændiskonum.
Þá segir Ástþór Dorrit hafa logið í viðtali við Ríkisútvarpið fyrir nokkrum árum þegar hún útskýrði ástæðu þess að hún flutti lögheimili sitt frá Íslandi til London til að sinna viðskiptum. Þá hafi Dorrit haldið fram að margar kynslóðir fjölskyldu hennar hefðu höndlað með demanta. Hið rétta sé að pabbi hennar hafi verið götustrákur og grafarræningi sem hafi stolið gulli. Hann hafi einnig verið í smygli á þjóðardemöntum. Það sé enginn afi eða amma í demantaviðskiptum Dorritar, það sé ósatt.
Þetta kom fram í viðtali Harmageddon við Frosta og Mána.
Ástþór var heimildarmaður fjölmiðla um að nöfn fjölskyldu Dorritar væri að finna í Panamaskjölunum. Fréttin hefur verið staðfest og gerir forsetaembættið enga athugasemd við að hún sé rétt.
Í yfirlýsingu Dorritar og Ólafs segir að þau hafi ekki vitað af félaginu í Panamaskjölunum. Það telur Ástþór af og frá. Hann segir að Dorrit hafi flúið Ísland til að flýja skattheimtu hérlendis. Færanlegur auður kallist demantar sem séu milljarða virði.