Ástrós opnar sig um viðkvæm og persónuleg mál: lífið eftir bjarka – „hvenær má fara aftur á deit?“ - nú er tíminn til að elska sjálfan sig

Í sjö ár barðist Bjarki Már Sigvaldason við krabbamein. Eftir hetjulega baráttu, með eiginkonu sína, Ástrós Rut Sigurðardóttur sér við hlið, hafði sjúkdómurinn betur. Bjarki lést í júní á þessu ári. Hann var aðeins 32 ára gamall. Ástrós var í viðtali á Stöð 2 fyrir ári og í kvöld verður birt viðtal Sindra Sindrasonar við Ástrós í Ísland í dag á Stöð 2.

„Ég væri á mun verri stað ef ég hefði ekki dóttur okkar sem við eignuðumst í veikindum hans,“ segir Ástrós sem segir dóttur þeirra vera framhald af honum

„En þó svo Bjarki sé ástin í lífi mínu langar mig til að eignast nýjan mann og eignast fleiri börn. Þetta vissi hann og þetta vita tengdaforeldrar mínir. Þau skilja það.“

\"\"

Ástrós stóð eins og klettur við hlið Bjarka og dáðust margir af baráttuþreki hennar og æðruleysi. Árið 2017 fór myndskeið, þar sem hún fór yfir kostnað við það að veikjast af krabbameini, líkt og eldur í sinu um samskiptamiðla. Þar brotnaði Ástrós saman. Til marks um það, hefur verið horft á það myndskeið 551,715 þegar þetta er skrifað. Í myndskeiðinu sagði Ástrós og beindi orðum sínum til þingmanna:

 „Hvernig getur þetta verið löglegt. Svona er Ísland í dag. Hvað er að frétta Ísland? Pælið aðeins í þessu í staðinn fyrir að skipta út bílaflotanum og kaupa nýja bíla og hækka launin ykkar, þingmenn, ef þið getið fundið ástæðu fyrir því, af hverju getið þið ekki fundið ástæðu til að gera líf öryrkja bærilegra? Ég er orðin svo ógeðslega þreytt á þessu.“

Í þættinum í kvöld opnar Ástrós sig um hvernig lífið er eftir andlát Bjarka og hvað framtíðin gæti borið í skauti sér. Ástrós segir frá þættinum á Fésbókarsíðu-sinni. Þar kveðst hún vera bæði stolt og stressuð vegna þáttarins sem sýndur er í kvöld. Þar opnar hún sig um viðkvæma og persónulega hluti sem eru kannski ekki ræddir dagsdaglega eða fyrir framan alþjóð. Ástrós segir:

„Hlutir eins og hvernig sambandið okkar Bjarka var, síðustu dagarnir í hans lífi en ég rétt náði til hans áður en hann kvaddi. Svo ræddum við hvernig mín sýn er á framhaldið og þessi ekkju og ekkla code. Hvenær má fara aftur á deit? Hvenær má fara út á lífið? Og af hverju erum við að búa til þessar reglur? Af hverju höldum við að samfélagið dæmi okkur ef við reynum að halda áfram lífinu?“

Ástrós bætir við að það geti verið ruglandi að vera ekkja eða ekkill. Þá eigi hún til að ofhugsa hluti vegna þess að hún sé að taka tillit til annarra. Ástrós segir:

„Í dag ætla ég að breyta þessu og byrja að taka tillit til mín og gera það sem mig langar að gera. Gera nákvæmlega það sem gerir mig hamingjusama.“

Þá bætir Ástrós við: „Ef það er einhvern tímann tími til að vera sjálfselskur as in elska sjálfan sig og setja sig í forgang, þá er tíminn akkúrat núna.“

\"\"

Ástrós bætir við að hún ætli ekki að hætta að lifa lífinu og reyna að öðlast hamingju. Það hefði Bjarki ekki tekið í mál. Ástrós segir að lokum:

„Ef einhver vill virkilega að ég standi upp og haldi áfram þá er það hann. Ég finn fyrir honum í kringum mig og í hjartanu mínu þar sem hann vill bara það allra besta fyrir okkur mæðgur. Við munum nefnilega alltaf eiga þessi 15 ár sem við þekktumst og elskuðum hvort annað.“

Ástrós ER í Íslandi í dag klukkan 18:55, strax að loknum kvöldfréttum.