Ítalinn Carlo Petrini forseti samtakanna \"Slow Food\" heimsótti Ísland á dögunum. Í viðtölum sem Carlo Petrini veitti og í fyrirlestri sem hann flutti ræddi hann meðal annars um fimm ástæður fyrir glæpsamlegu matvælaframleiðslu kerfi.
Carlo Petrini segir að matvælaverð sé í grunninn einfaldlega of lágt til að geta staðist. Matur kostar meira en áður en verðið er samt lægra. Það er kostnaður við framleiðslu á matvælum og það eru aukaverkanir af þessari framleiðslu. Hagkerfi matvælaframleiðslu segir Carlo Petrini vera brenglað. Hann telur ástæður þessarar brenglunar vera fimm talsins.
Númer eitt sé að frjósemi jarðvegs alls staðar fari hnignandi sökum hóflausrar notkunar á tilbúnum áburði i hartnær eitt hundrað og fimmtíu ár.
Númer tvö útheimti nútíma landbúnaður gífurlega vatnsnotkun - nálægt um 80% af öllum vatnabúskap fari í landbúnað.
Númer þrjú sé að hratt dragi úr líffræðilegum fjölbreytileika í jurta- og dýraríkinu.
Númer fjögur sé að bændum fækkar og þeir eldist en til þess að af nýliðun bændastéttarinnar geti orðið þarf að breyta landbúnaðarkerfinu.
Númer fimm sé matarsóun sem sé án hliðstæðu í söguni en Carlo Petrini segir að 30% af framleiddum matvælum sé hent á haugana.
rtá
Nánar www.bbl.is www.sjavarklasinn.is