Ástin í fermingarveislunni

Nýr frábær og músíkalskur þáttur af Lóa og lífið verður sýndur í kvöld á Hringbraut kl. 20. Lóa fær til sín tónlistarparið og kærustuparið Jóhönnu Guðrúnu og Davíð. Þau segja Lóu meðal annars frá því hvernig þau kynntust en það var fyrir algjöra tilviljun í fermingarveislu, þar sem þau áttu að spila nokkur lög saman en fyrir það höfðu þau aldrei hist áður. Hugljúf ástasaga og margt fleira í nýjasta þættinum Lóa og lífið, sem þú mátt ekki missa af.

Í þættinum taka þau lag fyrir Lóu sem heitir Undir stjörnubjörtum himninum. Lagið er danskt dægurlag, en textann samdi móðir Jóhönnu Guðrúnar. Textinn og lagið er virkilega fallegt og flutningur Jóhönnu yndisfagur. Textinn er ætlaður 6 mánaðar dóttur þeirra, en þau frumfluttu lagið í skírninni hennar. Þátturinn verður sýndur kl. 20 í kvöld á Hringbraut.