\"Þetta er verra ástand en var í verkfallinu,“ segir Katrín Sigurðardóttir, formaður félags geislafræðinga um aðstæður á Landsspítala en í dag taka uppsagnir 18 geislafræðinga á spítalanum gildi sem er þriðjungur starfandi geislafræðinga við spítalann.
Katrín er í viðtali við mbl.is um vanda spítalans í dag og minnir á að í verkfallinu hafi verið hægt að kalla fólk inn á undanþágu og það hafi verið gert í miklum mæli, en fólk sem sé hætt störfum verði vitaskuld ekki kallað til starfa. Hún segir að vel sé hægt að leysa deiluna sé vilji fyrir hendi en að svo virðist ekki vera eins og stendur þar sem engar viðræður séu milli félagsins og Landspítalans um málið sem stendur: \"Það er ekki einu sinni verið að tala við okkur. Það er ekkert verið að tala saman í dag og ef ekki er rætt við okkur mun lítið gerast.“
Katrín segir ástandið vera sorglegt: \"Það var nú bara hringt hingað frá Noregi og við beðin um að benda þeim á fólkið en það sem er sorglegt er að fólk er jafnvel að fara úr geiranum. Það er agalegt því við höfum ekki það mikið af geislafræðingum og þetta er algjör sóun.“
Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs, segir að upprunalega hafi 21 sagt upp störfum en að þrír hafi dregið uppsagnir sínar til baka. Þrjár eða fjórar uppsagnir muni síðan koma til framkvæmda um næstu mánaðarmót að óbreyttu en að vonast sé til að þeir og flestir hinna 18 sem hætta í dag muni draga uppsagnirnar til baka: \"Þetta þýðir að við munum þurfa að fara í sumarleyfisgórinn. það verður auðvitað mjög erfitt,\" segir hann við mbl.is.
Hann segir augljóst að breyta þurfi vinnufyrirkomulagi á spítalanum til að bregðast við ástandinu:\"Ég geri mér ekki grein fyrir því hvort ástandið verði betra eða verra [en í verkfallinu] en vonandi kemur ekki til þess, vonandi dregur fólk uppsagnir sínar til baka.“