Landlæknir hefur sent ríkisstjórninni nýtt minnisblað um ástandið innan heilbrigðiskerfisins af völdum verkfalls hjúkrunarfræðinga og félagsmanna í BHM og segir þar að ástandið hafi þegar valdið óbætanlegu tjóni.
Hann krefst tafarlausra aðgerða til að stöðva verkföllinn og höfðar þar til ábyrgðar stjórnvalda sem verði að hugsa öðru fremur um hag sjúklinga: "Verkföllum verður að ljúka tafarlaust, ef ekki á illa að fara," segir hann í minnisblaðinu og bætir við: "Það ástand sem hefur skapast er óþolandi og kemur til með að valda óbætanlegu tjóni fyrir fjölda sjúklinga og skaða heilbrigðisþjónustuna bæði til skamms tíma og til lengri tíma litið."
Hann segir stjórnvöld nú bera ábyrgð á því að ljúka þessu ástandi með einum eða öðrum hætti: "Í hnotskurn má segja að ekki verði hægt að tryggja öryggi sjúklinga og getur því ástandið valdið ómældum og óbætanlegum skaða," segir í harðorðu minnisblaði landlæknis til ráðherra í ríkisstjórn Íslands.