„ástandið er mjög skrýtið“

Óttarr Proppé formaður Bjartrar framtíðar og þingmaður segir enga spurningu um að flokkurinn bjóði fram aftur.  Verið sé að undirbúa kosningar um allt land. Aðspurður um hvort að það sé ekki bjartsýni að fara aftur fram þegar fylgið mælist 3,9 prósent og með því þurrkaðist flokkurinn af þingi, mynda missa öll 6 þingsætin, þá segir Óttarr að hann óttist ekki fylgismælingarnar: „Ég hef verið í þessum sporum áður þar sem fylgið mælist ekki neitt og svo gerist bara eitthvað annað“, og vísar líkast til framboðs  Besta flokksins til borgarstjórnar í þarsíðustu sveitarstjórnarkosningum.  Um stöðuna milli stjórnarflokkanna og deilum um hvort kjósa eigi í haust eða vor og hvort haustkosningum fylgi einhver skilyrði,segir Óttarr að ástandið sé \"mjög skrýtið\". Flestir þingmenn Framsóknar segja skilyrði um afgreiðslu vissra þingmála vera fyrir kosningum í haust og að kjósa eigi ferkar í vor. Samstarfsflokkurinn er á öndverðu meiði, þingmenn Sjálfstæðisflokksins segja að búið sé að lofa kosningum í haust. Uppnám er á stjórnarheimilinu útaf þessu.