Í fyrsta sinn er birt skýrsla um ástand mannvirkja í almannaþágu eða innviði.
Hana má lesa á vef Samtaka iðnaðarins (SI).
Í skýrslunni er að finna umsögn um vegakerfið. Það fær gula spjaldið.
Þá segir að 372 milljarða króna þurfi í hverskonar mannvirki í almannaþágu. Vegakerfið þarf minnst 150 milljarða.
SI minna á að saman mynda mannvirki í almannþágu lífsgæði samfélagsins. Með því að fjárfesta í þeim er fjárfest í samkeppnishæfni atvinnuveganna og í hagvextir framtíðarinnar.