Rannsókn á flugslysinu í gær hefst upp úr hádegi í dag.
Mjög erfitt er að komast að flakinu en vélin hrapaði í úfnu hrauni skammt frá Hafnarfirði.
Flakið af vélinni verður ekki flutt af slysstað fyrr en á morgun en fram til þessa hafa þyrlur verið notaðar við björgun, flutninga og rannsókn.
Áður hefur komið fram í yfirlýsingu frá Flugskóla Íslands að báðir mennirnir sem fórust með vélinni hafi verið flugkennarar.
Algjör óvissa er um ástæðu flugslyssins eftir því sem fram kom í hádegisfréttum Rúv en það gæti tekið allt að þrjú ár að rannsaka það sem fór úrskeiðis og birta niðurstöðu.
Ekki er búið að gefa upp nöfn mannanna sem létust.