Einar Gautur Steingrímsson, lögmaður Ástu Kristínar Andrésdóttur hjúkrunarfræðings hefur krafist miskabóta af hálfu ríkisins fyrir hönd Ástu. Frá þessu greinir mbl.is.
Ásta var sýknuð af ákæru um manndráp af gáleysi vegna starfa sinna sem hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum 9. desember eftir að sjúklingur lést á hennar vakt. Við réttarhöld kom fram hjá samstarfsfólki að hún væri sérlega iðin, samviskusöm og \"út um allt\" í þágu sjúklinganna.
Ásta hefur orðið fyrir miklum tekjumissi síðan málið hófst. Óhætt er að segja að þjóðin hafi stutt hana í baráttunni við kerfið sem um síðir lauk með sigri. Eiginkona mannsins sem lést á vakt Ástu fagnaði sýknudómi hjúkrunarfræðingsins.
Ásta krefst 4ra milljóna króna í bætur. Hún lýsti málsókninni á sínum tíma sem helvíti og vill nú fá greiðslu fyrir þá vítisvist.