Ásta sigríður er látin: björgvin minnist móður sinnar - „takk fyrir að trúa alltaf á mig“

\"\"Ásta Sig­ríður Þor­leifs­dótt­ir fædd­ist í Hafnar­f­irði 25. júlí 1921. Hún lést á Sólvangi í Hafnar­f­irði 17. des­em­ber 2019. Eiginmaður Ástu Sigríðar var Halldór Baldvinsson skipstjóri en hann lést árið 1999.

Ásta Sigríður og Halldór eignuðust fimm börn. Eitt af börnum Ástu og Halldórs er stórsöngvarinn og einn okkar fremsti listamaður í áratugi, Björgvin Halldórsson. Í minningargrein í Morgunblaðinu minnist Björgvin og fjölskyldur hans Ástu á afar einlægan og fallegan hátt. Ljóst er að hún hefur haft djúpstæð áhrif á Björgvin, bæði á gifturíkan tónlistarferil hans og sem manneskju.

Í minningargrein Morgunblaðinu í dag segir::

„Í dag fylgjum við móður okkar Ástu Sigríðar Þorleifsdóttur til grafar með söknuði. Það eru margar og góðar minningar sem koma upp í huganum í dag sem við munum geyma vel og vandlega. Mamma var vinamörg og mjög félagslynd og hafði gaman að vera innan um fólk og fólk varð ríkari að kynnast henni.“

\"\"Vinir Ástu Sigríðar hafa lýst henni með þeim hætti að heimsókn til hennar hafi alltaf verið endurnærandi og Ásta Sigríður hafi búið yfir undursamlegum frásagnarhæfileikum. Hjá henni hafi alltaf verið hægt að hlaða batteríin.

„Til er fólk sem gerir mann glaðari og betri, bara með því að vera til,“ sagði vinkona hennar í Morgunblaðinu árið 2011 þegar hún fagnaði stórafmæli.

Björgvin segir í Morgunblaðinu að kímnigáfa móður hans hafi verið engri lík. Þá hafi orðtök hennar og sögur sem og mannlýsingar verið einstakar. Björgvin bætir við að móðir hans hafi oft verið innan handar þegar hann var að semja tónlist. Björgvin segir:

„Hún var mjög músíkölsk og leitaði ég oft í lagabanka hennar til að finna réttu lögin. Hún fylgdist mjög vel með tónlistarbransanum og hafði gaman að hlusta á nýjustu listamennina flytja lög sín.“

Björgvin þakkar einnig starfsfólki á Sólvangi fyrir að vera til staðar með hlýju og fagmennsku. Þá þakkar Björgvin móður sinni fyrir allar gjafirnar sem hún færði honum á lífsleið sinni. Björgvin segir:

„Ég vil þakka mömmu fyrir allt sem hún gaf okkur, allt frá æskudögum til dagsins í dag og er enn að gefa.

Takk fyrir að hjálpa mér að skilja lífið betur.

Takk fyrir að trúa alltaf á mig og styðja mig í mínum ákvörðunum í lífinu.

Góða ferð elsku mamma. Bið að heilsa pabba sem tekur á móti þér.

Megi allar góðar vættir blessa minningu mömmu.“

Útför Ástu Sigríðar fór fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag 6. janúar klukkan 15.00