Ásta Dís Óladóttir er aðeins tíu ára gömul. Hún tók þátt í björgunaraðgerðum í Garði í gær. Var hún óhrædd við að vaða út í sjó og hjálpa dýrunum sem börðust þar fyrir lífi sínu.
Móðir hennar, Ína Hrund Ísdal, segir í samtali við Fréttablaðið að Ásta hafi tekið þátt í að losa tvo hvali sem voru fastir í fjörunni og tókst henni að koma þeim út í sjó aftur. Þá tók Ásta einnig þátt í að ausa yfir hvali og halda þeim rökum í um þrjá klukkutíma, eða þar til björgunarsveitarmenn komu á vettvang.
Ína Hrund segir að dóttir hennar sé mikill dýravinur og þá eru hvalir og kanínur í sérstöku uppáhaldi. Ína Hrund sagði í samtali við Fréttablaðið:
„Hún óð galvösk í sjóinn án þess að hika og vék ekki frá hvölunum í þrjá klukkutíma.“