Ásta björt er látin

Ásta Björt Thoroddsen tannlæknir fæddist 17. maí 1942 í Reykjavík. Hún lést á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi 4. september 2019. Ásta lét mikið á sér kveða í kvennabaráttu hér á landi með ýmsum hætti. Greint er frá andláti Ástu í Morgunblaðinu.

Ásta Björt lauk prófi sem tannlæknir frá Háskóla Íslands 1968 og starfaði sjálfstætt sem slíkur í Reykjavík til ársins 2011. Ásta var einn af stofnendum Úanna, félagsskapar ungra kvenréttindakvenna á 8. áratugnum. Þá var hún stofnfélagi Soroptimistafélagsins í Breiðholti og þar lengi formaður og virk hjá Soroptimistasamtökunum á Íslandi. Soroptimistar eru alþjóðleg samtök en markmið þeirra er að hvetja til aðgerða og skapa tækifæri til að breyta lífi kvenna og stúlkna með fjölþjóðlegu samstarfi og alþjóðlegu félaganeti. Ásta var einnig virk í Kvenréttindafélagi Íslands.

Fyrir um 16 árum greindist Ásta með Parkinson-veiki en hún lét það ekki stöðva sig. Hún sótti alla fundi og ráðstefnur, þó hún væri komin í hjólastól. Tókst hún á við þau veikindi af atorku og glaðværð, nær alltaf gefandi, aldrei þiggjandi, eins og lýst er í Morgunblaðinu.

Í minningargrein frá Soroptimistaklúbbs Bakka og Selja segir:

\"\"„Hún var stofnfélagi klúbbsins. Ásta Björt var alla tíð mjög virk í Soroptimistasamtökunum, bæði í klúbbnum okkar og í landssambandinu. Hún gegndi mörgum embættum á báðum stöðum og var öflug í nefnda og félagsstarfi. Hún hafði mikla þekkingu á málefnum samtakanna.

Þrátt fyrir erfið veikindi síðustu ár sleppti Ásta aldrei hendinni af klúbbnum og sótti fundi og viðburði nánast fram á síðasta dag. Það má með sanni segja að hún hafi hvatt okkur til dáða.“

Þá segir í kveðju frá Tannlæknafélagi Íslands:

„ ... lauk hún kandídatsprófi í tannlækningum við Háskóla Íslands árið 1968. Á þeim árum voru tannlæknar karlastétt, hún var ein örfárra kvenna í tannlæknanámi. [...] Segja má að námsárin hafi tekið á. Á öðru ári í tannlæknanámi eignaðist hún sitt fyrsta barn og annað barn fæddi hún í lok námsins sumardaginn fyrsta, en var á fullu í verklega náminu fram á síðasta dag.

Í blaðaviðtali segir hún að verst hafi verið að missa af síðasta kennsludegi.

„Þegar prófin voru í maílok var ég löngu komin á fætur, hress og úthvíld.“

Þetta lýsir vel hversu dugmikil kjarnakona Ásta Björt var og einkenndi starfs- og lífsferil hennar. Árið 1978 setti hún á fót eigin tannlæknastofu við Grensásveg sem hún starfrækti til 1983 þegar hún festi kaup á húsnæði fyrir tannlæknastofu sína í Stigahlíð 44 og starfrækti hana þar til hún lét af störfum árið 2011.

„Í ársbyrjun 1983 er ég hóf störf á nýja staðnum, tók ég dótturina með mér í vinnuna en það gekk allt að óskum með góðri klínikdömu. En dóttirin var nú líka afskaplega þæg og róleg.“

Ásta Björt lét sig félags- og trúnaðarstörf varða. Sérstaklega áttu kvenréttindamál hug hennar. Hún var á yngri árum í stjórn Kvenréttindafélags Íslands. Hún starfaði mikið með kvenréttindafélaginu Úunum og vann að útvarpsþáttum þess. Hún var stofnfélagi í Soroptimistaklúbbi Reykjavíkur, var í stjórn þess og formaður um árabil. Hún starfaði einnig í Landssambandi soroptimista, var verkefnisstjóri heilbrigðismála sambandsins og annar varaforseti þess 1998-2000.“