Lagaleg áhyggjuefni hlaðast nú inn á borð Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.
Tvennt bættist við um helgina. Annars vegar var bent á að vafamál sé hvort Trump framboðinu 2016 hafi samkvæmt samkvæmt bandarískri kosningalöggjöf verið heimilt að þiggja erlenda ráðgjöf Cambridge Analytica, breska ráðgjafarfrirtækisins.
Í öðru lagi komu í ljós lögfræðileg álitamál kringum samband Trumps við Stormy Daniels. Í 60 Minutes viðtalinu sem sýnt var á CBS í gærkvöldi sagði Daniels að fyrir sjö árum hafi sér verið hótað líkamsmeiðingum segði hún frá sambandi þeirra Trumps opinberlega. Slík hótun telst til lögbrota og eins er vel hugsanlegt að 130 þúsund dala greiðslan, sem Daniels fékk þegar hún undiritaði þagnareiða um sambandið, hafi verið brot á kosningalöggjöfinni, því hún hafi ekki verið talin fram sem kostnaður af hálfu Trump framboðsins.
Michael Cohen, lögmaður Trumps, sem samdi á sínum tíma við Stormy Daniels, þvertekur fyrir að hafa hótað Daniels. Í yfirlýsingu sem lögmaður Cohens sendi út eftir viðtalið er þess þvert á móti krafist að Daniels dragi til baka ásökunina um hótunina og biðjist afsökunar á henni. Ásökunin sé bæði „röng og meiðandi.“