Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði í útvarpsþættinum Harmageddon hjá Frosta og Mána í morgun að hann myndi ekki taka þátt í því að tala við þáttastjórnendur á þeim nótum sem útvarpsmennirnir vildu gera.
Þessi ummæli Ásmundar féllu eftir skýringar þingmannsins á þingræðu í gær um hælisleitendur og flóttafólk, hvort loka ætti landamærum Íslands og senda hælisleitendur strax aftur til baka frá Keflavík.
Að þeirri umræðu lokinni ræddu Frosti og Máni áhrif þjóðkirkjunnar hér á landi og hvort hún hefði orðið íslensku samfélagi til góðs. Ásmundur taldi svo vera og vildi meina að kristin gildi einkenndu land og þjóð. Frosti sagði þá að Ásmundur hefði með ummælum sínum um að kristni væri sett til hliðar í grunnskólum skipt samfélaginu upp í hópa. Frosti sagði sína skoðun að kirkjan hefði drottnað hér á landi með illu og góðu en þó aðallega illu.
\"Neineinei, ég tala ekki við þig á þessum nótum,\" svaraði Ásmundur þá.
Spurður um áhrif drekkinga kvenna hér á landi og ábyrgð kirkjunnar á því svo eitt dæmi væri tekið sagði Ásmundur að um sumt þyrfti ekki að ræða en kristin gildi hefðu staðist tímans tönn, þau væru alltaf ný. Frosti taldi kristna áherslu þingmannsins skýra að nokkru hörð viðbrögð almennings við ýmsum ummælum Ásmundar t.d. um múslima.
Tala ekki við þig á þessum nótum
Fleiri fréttir
Nýjast