Í dag, miðvikudaginn 27. janúar kl. 16.30 verður sérstök umræða á Alþingi um listamannalaun.
Málshefjandi er Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Til andsvara verður mennta- og menningarmálaráðherra, Illugi Gunnarsson.
Um fátt hefur verið meira rætt en listamannalaun síðustu vikur. Hefur einnig verið talað um meinta herferð tiltekinna fjölmiðla gegn útfærslu fyrirkomulagsins.
Þingmenn sem Hringbraut hefur rætt við telja líklegt að Ásmundur og fleiri þingmenn muni gera harða hríð af fyrirkomulagi við úthlutun. Nefna má að Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, hefur verið mjög gagnrýnin á þessa ríkisstyrki. Þá hefur verið spurt hvort listamenn ættu ekki frekar að fá sér „almennilega vinnu“.
Viðbúið er að fjöldi menningarsinnaðra Íslendinga muni fylgjast með umræðunum í dag. Kannski munu ómenningarsinnaðir Íslendingar einnig sýna málinu áhuga.
Launin eru afar umdeild meðal þjóðarinnar. Skv. könnun MMR eru 53% Íslendinga fylgjandi því að ríkið greiði út listamannalaun. Hlutfall þeirra sem eru fylgjandi hefur aukist um yfir 7% síðan í febrúar 2013 og um yfir 14% síðan í mars 2010.
Þau sem styðja Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn eru líklegust til að vera andvíg því að ríkið greiði út listamannalaun en þau sem styðja Samfylkinguna og Vinstri græna eru líklegust til að vera fylgjandi því að ríkið greiði út listamannalaun.