Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur tilkynnt samflokksfólki sínu að hann styðji ekki þingsályktun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra um innleiðingu þriðja orkupakkans. Er hann þar með fyrsti þingmaður ríkisstjórnarinnar sem lýsir andstöðu við orkupakkann. Viljinn greinir frá.
Ásmundur hafði fyrr í vetur lýst yfir miklum efasemdum um málið. Aðspurður vildi hann ekki tjá sig um málið við Viljann, en miðillinn segist hafa öruggar heimildir fyrir því að afstaða Ásmundar sé á þessa leið.
Hin ýmsu samtök hafa lagst gegn innleiðingu þriðja orkupakkans. Þar hefur Orkan okkar verið áberandi en einnig hefur Alþýðusamband Íslands lagst gegn pakkanum, Landssamband bakarameistara einnig og þá hafa Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar lýst yfir andstöðu sinni.
Aðrir hafa bent á að ekkert sé að óttast þegar kemur að innleiðingu þriðja orkupakkans og bent á kosti þess að gera það, t.a.m. utanríkisráðherra, Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, og Ketill Sigurjónsson, ráðgjafi í orkumálum.
Auk þess virðist sem þingmeirihluti sé fyrir afgreiðslu þess, líkt og Viljinn greinir frá. Þannig hafa Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, boðið ríkisstjórninni að styðja málið svo unnt sé að koma því í gegnum þingið, og svo virðist sem þingmenn Pírata styðji það einnig.
Í frétt Viljans er bent á að miðstjórn Framsóknarflokksins hafi hafnað innleiðingu orkupakkans, auk þess sem Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður flokksins og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sagði á dögunum að mistekist hefði að sannfæra þjóðina um ágæti innleiðingarinnar. Ekki liggur þó enn fyrir hvort einhverjir þingmenn Framsóknarflokksins og Vinstri grænna muni lýsa yfir andstöðu við innleiðingu þriðja orkupakkans, líkt og Ásmundur hefur nú gert.