Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þar sem Íslendingum finnist það eðlilegt að borga veggjald á hraðbrautum erlendis að það sama ætti að gilda um erlenda ferðamenn hér á landi.
„Íslendingum sem ferðast erlendis og aka um á góðum hraðbrautum finnst eðlilegt að greiða veggjald fyrir afnot af vegakerfi heimamanna. Viljum við ekki að það sama gildi um erlenda ferðamenn á Íslandi sem eru 22% af umferðinni á þjóðvegum landsins.“
Þá segir Ásmundur að kostnaður vegna vegakerfisins á Íslandi verði 400 milljarðar á næstu áratugum.
Okkur munar um 22% greiðsluþátttöku erlendra ferðamanna þegar áætlanir segja að kostnaðurinn við vegakerfið á næstu árum og áratugum verði 400 milljarðar. En gjaldið má ekki vera hærra en ávinningurinn af greiðari umferð um nýja og betri vegi og vegamannvirki,“ segir Ásmundur í Facebook færslu sinni.
Má sjá á umræðum sem hafa skapast á Facebook síðu þingmannsins að ekki eru allir sammála hugmyndum Ásmundar um að setja veggjald á þjóðvegi landsins.
„Allir sem aka bíl, hafa borgað skatta til vegagerðar, með eldsneytis sköttum, bifreiðasköttum, sköttum af varahlutum og olíum, sköttum af innkaupsverði bíla ofl. ofl. Kominn tími til að þið pólitísku business menn sýnið þegnunum lágmarks virðingu fyrir það sem er mokað undir ykkur. Við eigum betra skilið. Þið skilið aðeins inn 26 milljörðum af teknum 85 milljörðum til vegagerðar! Hvert fer mismunurinn? Ég krefst svara,“ segir Birgir Rúnar Sæmundsson við færsluna.
Ásmundur svarar þessu og segir: „Það virðist enginn taka eftir því að ég sagði að veggjald mætti aldrei verða hærra en ávinningurinn af framkvæmdinni. Gaman væri að sjá hverjir átta sig á hvað það merkir.“