Meint sóttvarnarbrot í Ásmundarsal á Þorláksmessu, þar sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, var meðal gesta, bíður enn afgreiðslu á ákærusviði lögreglu. Stundingreinir frá þessu.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa tíu sóttvarnarbrotamál beðið í meira en fjóra mánuði, en það er ramminn sem embættið hefur sett sér við afgreiðslu slíkra brota.
Hulda Elsa Björgvinsdóttir, sviðsstjóri ákærusviðsins, segir í samtali við Stundina að hún geri ráð fyrir að málið verði afgreitt á næstu vikum. Slík mál geti þó þurft að bíða í heilt ár. Mikið álag sé á embættinu.
Alls er búið að skrá meira en 300 brot í málaskrá lögreglu, þar af er búið að sekta í 90 þeirra, alls meira en 13 milljónir króna í sektir.