Alþingismennirnir Ásmundur Einar Daðason og Ásmundur Friðriksson eru samdóma um að Landsbankinn fái ekki endurheimt traust nema stjórnendur bankans víki. Borgunarmálið þar sem verðmæt eign í ríkiseigu var seld völdum hópi án útboðs ráði úrslitum í þessu efni.
Þetta kom fram í samtali Ásmundanna við Ólafana á Hringbraut á fimmtudagskvöld en þáttur þeirra, sem verður endursýndur á morgun, er nú einnig sjáanlegur á vef stöðvarinnar.
Í þættinum fjalla þeir einnig um samstarf ríkisstjórnarflokkanna á kjörtímabilinu og hugsanlegt samstarf þeirra að afloknum alþingiskosningum að ári.
Þættir Ólafanna eru vikulega á dagskrá Hringbrautar og endursýndir um helgar.