Áslaug vill gísla martein aftur

Áslaug Friðriksdóttir fráfarandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segist vona að Gísli Marteinn Baldursson snúi aftur í borgarmálin.

„Las þetta góða viðtal við Gísla Martein Baldursson um helgina. Gísli hefur mjög skýra sýn á borgarmálin og þróun þeirra til framtíðar. Reykjavík væri ríkari ef hann kysi að snúa til baka í pólitíkina og vonandi gerir hann það“, skrifar Áslaug á facebook síðu sína. 

Gísli Marteinn sagði í viðtali við Fréttablaðið að honum þyki vænna um Reykjavíkurborg en Sjálfstæðisflokkinn og útiloki ekki að snúa aftur í stjórnmálin þótt starfið á RÚV sé gott.

Í fyrra gagnrýndi hann til að mynda harðlega Halldór Halldórsson oddvita Sjálfstæðismanna á Twitter og sakaði Sjálfstæðsflokkinn í borginni boða mengunarstefnu í  samgöngum „Þið viljið meiri og hraðari umferð en meirihlutinn. Kemur skýrt fram. Slíkt skapar aukna svifryksmengun“, skrifaði Gísli Marteinn meðal annars sem fjarlægðist flokkinn og tók einarða stefnu í umhverfisverndarmálum, var andsæðingur flugvallarins og fylgjandi þéttingu byggðar. Með því stimplaði Gísli sig út sem líklegur framtíðarleiðtogi flokksins.

Áslaug var stimpluð út af flokknum gegn vilja sínum þegar stillt var upp á lista Sjálfstæðisflokksins í mars. Gísli Marteinn og Áslaug hafa átt mikla samleið undanfarið og í áherslum sínum verið meira á leið meirihlutans en eigin flokks og sagði Áslaug nýverið í blaðinu Mannlíf að fyrir að hafa ekki verið andsnúinn öllum sem meirihlutinn boðaði hafi henni verið refsað af eigin flokk.