Móðir þriggja ára stúlku sem hlaut alvarlega nýrnabilun eftir að hafa greinst með Ecoli bakteríuna á bænum Efstadal 2 segir að strax hefði átt að loka bænum þegar ljóst var að börn höfðu smitast þar.
Ítarlegt viðtal við Áslaugu er að finna á vef Vísis.
Hún upplifir að viðskiptalegir hagsmunir hafi verið teknir fram yfir líf og heilsu barnanna. Enn er óljóst hvort dóttir hennar nái sér að fullu. Áslaug Fjóla Magnúsdóttir, móðir stúlkunnar segir:
„Þetta voru rosaleg krampaköst. Að horfa upp á barnið sitt svona, það á engin að þurfa að ganga í gegn um þetta. Við verðum að læra af þessu.“
Þriggja ára dóttir Áslaugar, Aníta, er ein af þeim nítján börnum sem greindust með E.coli bakteríuna í sumar. Talið er að öll hafi þau smitast á bænum Efstadal 2 í Bláskógabyggð en ekki er komið á hreint hvort það sé vegna snertingar við kálfa á staðnum eða vegna íss sem þar er seldur.
Ítarlegt viðtal við Áslaugu er að finna á vef Vísis.