Aukafundurinn í borgarstjórn í gærdag reyndist mikill hita- og átakafundur, enda var þar tekist á um eina umdeildustu tillögu sem þar hefur verið til umfjöllunar um áralangt skeið. Ummæli Áslaugar sem féllu í hita leiksins á fundinum vöktu strax mikla athygli, en þau voru þessI. \"Segjum að nasistar kæmust hér til valda og þeir ákveddu að setja einhvers konar bann á hluti, fara í gegnum innkaupastefnuna og segja að þetta sé einhvern veginn þannig að hér sé verið að brjóta á fólki. Þið eruð í raun að gera þetta en þið teljið að þið séuð ekki nasistar því þið eruð góða fólkið,\" sagði Áslaug og bætti við. „Mér finnst þið sýna svo ógeðslega lítinn skilning á því sem þið gerðuð fyrir viku.\"
Þessi ummæli Áslaugar hafa fengið falleinkunn víða á samfélagsmiðlum, ekki síst hjá pólitískum samherjum meirihlutans í borginni, en almennt virðast mjög margir vera þeirrar skoðunar að hér hafi borgarfulltrúinn farið fram úr sjálfri sér í myndlíkingu. Sjálf sagði Áslaug á Facebook-síðu sinni um miðnætti í gærkvöld að hún hefði alls ekki verið að líkja meirihlutanum við nasista: \"Ég varð fyrir vonbrigðum með það hvernig meirihlutinn hagaði málflutningi sínum. En svona svo það sé á hreinu þá var ég auðvitað ekki að kalla meirihlutann nasista. Ég notaði nasistana sem dæmi um af hverju virðing fyrir lögum og reglu skiptir máli. Lög eru ekki til þess að vera bara stíf og leiðinleg og koma í veg fyrir falleg mál. Þau eru öryggisventill – einmitt sett til að gera vondu fólki erfiðara fyrir ef það kemst til valda,“ skrifaði Áslaug í gærkvöld.
Í morgun baðst borgarfulltrúinn svo afsökunar á orðum sínum á fundinum: \"Ég var ekki að líkja meirihlutanum við nasista en það hefur misskilist og það þykir mér mjög leitt. Ég vil því biðjast afsökunar á því að hafa ekki valið orð mín af meiri kostgæfni og vandað betur til máls míns.“