Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kallar eftir auknu svigrúmi háskóla til að innrita nemendur. Hún telur of mikið einblínt á prófgráður og segir að háskólar ættu að geta metið aðra þekkingu og reynslu umsækjenda, t.d. úr atvinnulífinu, til jafns við stúdentspróf. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Áslaug Arna bendir á að umsækjendur með stúdentspróf hafi forgang inn í hérlenda háskóla og hyggst leggja fram frumvarp þegar þing kemur saman að nýju í lok janúar. „Í of mörgum tilfellum þá er fólki sem á erindi í háskólanám gert of erfitt fyrir að komast að. Með þessu frumvarpi þá væri það áfram háskólanna að setja inntökuskilyrðin en þeir yrðu þá ekki eins bundnir af tilteknum prófgráðum umsækjenda og fengju aukið svigrúm til að taka inn hæfa og góða nemendur með ólíkan bakgrunn“, segir Áslaug Arna í samtali við Fréttablaðið.
Áslaug Arna bendir auk þess á að verið sé að skoða að koma fagháskólastigi á laggirnar sem kæmi þá mögulega til móts við þessar þarfir. „Þar til því hefur verið lokið tel ég rétt að leggja fram þessa breytingu til að auka sveigjanleika kerfisins og auka svigrúm háskólanna til að taka inn fjölbreyttari nemendahóp,” segir hún einnig við Fréttablaðið.