Áslaug arna verður nýr dómsmálaráðherra

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir verður nýr dómsmálaráðherra. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins tilkynnti um þessa ákvörðun nú fyrir stuttu. Áslaug verður formlega sett sem ráðherra á ríkisráðsfundi á morgun. Áslaug, sem er einnig ritari Sjálfstæðisflokksins, þarf að hætta sem ritari flokksins vegna reglna flokksins. Áslaug hefur verið á þessu kjörtímabili formaður utanríkismálanefndar á Alþingi.

Sigríður Á. Andersen sagði sig frá embætti dómsmálaráðherra eftir að Mannréttindardómstóll Evrópu dæmdi svo að skipan dómara við Landsrétt bryti gegn Mannréttindarsáttmála Evrópu. Tók þá Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir við embætti dómsmálaráðherra tímabundið.