Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, varpar upp þeirri spurningu á Twitter-síðu sinni hvort það væri ekki eðlilegt að byrja á að stytta einangrun og sóttkví barna í samræmi við önnur lönd.
Áslaug Arna er nú í einangrun eftir að hafa greinst með Covid fyrr í vikunni.
„Hver dagur, mánuður og ár í þeirra lífi er stærri en okkar sem eldri eru. Ekki síst þegar litið er til alvarlegra annarra afleiðinga á heilsu þeirra og þroska,“ segir Áslaug Arna jafnframt í færslu sinni.
Þá bætir hún einnig við þeim sem ekki búa við öryggi og einangrast. Að sögn Áslaugar Örnu hljóti þau rök að vega upp á móti nauðsyn fyrir tíu daga einangrun einkennalausra barna þegar líða fer á annað ár í faraldrinum.
„Við megum ekki ganga lengra en þörf krefur,“ segir Áslaug Arna að lokum.
Og þeirra sem ekki búa við öryggi og einangrast. Þau rök hljóta að vega upp á móti nauðsyn fyrir 10 daga (+1/2) einangrun einkennalausra barna þegar líða fer á annað árið í faraldrinum. Við megum ekki ganga lengra en þörf krefur.
— Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) December 29, 2021