Áslaug arna skýtur á davíð: „mikilvægt að festast ekki í fortíðinni“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður utanríkismálanefndar og ritari Sjálfstæðisflokksins, skaut á Davíð Oddsson, fyrrverandi formannn flokksins og ritstjóra Morgunblaðsins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í gær. Fréttablaðið greinir frá.

Þar segir hún mikilvægt að festast ekki í fortíðinni, og vísar með því til ummæla Davíðs sjálfs í leiðara Morgunblaðsins í þarsíðustu viku. Þar vandaði hann Sjálfstæðisflokknum ekki kveðjurnar:

„Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að fóstureyðingarlögin, sem eru önnur af tveimur afmælisgjöfum flokksforystu til fólksins síns, séu komin úr Valhöll, herbúðum þess flokks. Það vekur nokkra undrun, þótt viðurkenna megi að það sé fátt sem veki undrun nú orðið. Uppfinningamenn hafa lengi reynt að finna upp eilífðarvélina og ekki tekist. Stjórnmálaflokkar eru ekki eilífir og hafi þeir ekki lengur fyrir neinu að berjast styttist í tilverunni og þýðir ekki að fárast yfir því. Enda þarf það í sjálfu sér ekki endilega að vera harmsefni,“ sagði Davíð.

Áslaug svarar þessu svo: „Rétt er það sem áður hefur verið haldið fram í þessu blaði að uppfinningamenn hafa lengi reynt að finna upp eilífðarvélina og ekki tekist. Því er mikilvægt að festast ekki í fortíðinni, heldur þróast í takt við nýja tíma og leiða þær óumflýjanlegu breytingar sem framtíðin mun hafa með sér fremur en að óttast þær.“

„Það er ekki hlutverk Sjálfstæðisflokksins að standa vörð um úreltar hugmyndir sem þóttu einu sinni góðar,“ bætir hún við. „Við gerum greinarmun á grunngildum og einstaka stefnumálum eða úrræðum sem einu sinni virkuðu. Um leið og við berum virðingu fyrir sögunni er mikilvægt að við mótum framtíðina.“

Að lokum segir hún ólík sjónarmið um ýmis mál ríkja innan flokksins en að stefna hans standi þó á traustum grunni. „Í krafti fjöldans býr flokkurinn að mikilvægri reynslu þeirra sem hafa verið lengi í stjórnmálum um leið og ungt og hæfileikaríkt fólk haslar sér völl. Hvort tveggja er forsenda þess að flokkurinn vaxi og dafni.“