Segir mikilvægt að lögreglan hafi sérþekkingu á afleiðingum heimilisofbeldis: „þetta eru viðkvæm brot sem varða manneskjur“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra greinir frá því í pistli sínum í Morgunblaðinu í dag að ákall um aðgerðir gegn ofbeldi í nánum samböndum hafi verið samþykkt á fundi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í síðustu viku en hún segir mikla vitundarvakningu hafa orðið á afleiðingum heimilisofbeldis. Átján aðildarríki OECD standa að ákallinu

„Ég sat í pallborði á fundinum og greindi þar meðal annars frá breyttu verklagi lögreglu á Íslandi, mikilvægi þess að skoða kerfið út frá upplifun brotaþola auk þess sem ég fjallaði um nýleg lagaákvæði varðandi ofbeldi í nánum samböndum,“ segir Áslaug í pistlinum og bætir við að Alþingi hafi samþykkt heildstæða aðgerðaáætlun gegn ofbeldi til ársins 2022.

Ráðgjafamiðstöðvarnar Bjarkahlíð og Bjarmahlíð vakið mikla athygli

Að sögn Áslaugar er markmið áætlunarinnar að vinna að forvörnum og fræðslu auk þess sem henni er ætlað að bæta viðbrögð og málsmeðferð í réttarkerfinu. „Unnið hefur verið að umbótum á löggjöf, bættu verklagi við meðferð þessara mála innan réttarvörslukerfisins, aukinni vernd fyrir þolendur, einfaldari meðferð nálgunarbanns og auknum skilningi á þörfum þolenda brotanna,“ bætir hún við og vísar til þess að sérstakar ráðgjafamiðstöðvar hafi verið stofnaðar fyrir þolendur heimilisofbeldis.

„Á ráðstefnunni veittu önnur ríki þessu mikilvæga skrefi okkar í að opna ráðgjafarmiðstöðvar mikla athygli og sérstaklega var fjallað um þörf annarra landa á að stíga þessi skref,“ segir Áslaug. Þá segir hún mikilvægt að lögreglumenn hafi sérþekkingu af afleiðingum heimilisofbeldis enda séu þeir vanalegast þeir fyrstu á vettvang.

Að lokum segir Áslaug það þýðingarmikið að sérstakt ákvæði sé í lögum sem geri ofbeldi í nánu sambandi refsivert en slíkt ákvæði hafi verið sett í lög hér á landi árið 2016. „Með því voru þau skilaboð gefin til samfélagsins að ofbeldi í nánum samböndum yrði ekki liðið og að slík brot væru ekki einkamál aðilanna. Þetta eru viðkvæm brot sem varða manneskjur og því er mikilvægt að kerfið okkar hafi burði til að taka á þeim málum.“

 

Fékk frábært tækifæri til að vera í pallborði í dag um ofbeldi í nánum samböndum, hvað við getum gert og höfum gert er varðar meðal annars lagasetningu og verklag. https://t.co/aqMNF0W3eJ

— Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) February 5, 2020