Áslaug arna: „ég hélt við værum komin lengra“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, nýskipaður dómsmálaráðherra, var gestur í Silfrinu í morgun. Þar kvaðst hún hafa engan sérstakan húmor fyrir því að þátttöku hennar í pólitík sé líkt við fegurðarsamkeppni eða því að vera kölluð puntudúkka.

Þetta er brot úr frétt DV. Hér má lesa fréttina í heild sinni.

„Það er ómálefnaleg gagnrýni sem birtist, sem maður hefur kannski engan sérstakan húmor fyrir,  þegar fólk líkir þátttöku manns í pólitík við fegurðarsamkeppni eða segir að maður sé einhver puntudúkka“

Sigmar Guðmundsson, þáttastjórnandi, bar undir hana skopmynd sem birtist af Áslaugu í Morgunblaðinu á dögunum sem málaði hana upp sem fegurðardrottningu að berja á fýldum eldri mönnum. 

„Ég hélt við værum komin lengra en að tala um þetta val eða pólitík, hvort það snúist um útlit eða eitthvað annað og ég vona að við getum færst upp úr þeim skotgröfum,“ sagði Áslaug um myndina. Hún tók þó einnig fram í Silfrinu að hún taki gagnrýni á aldur hennar, kyn eða reynslu ekki inn á sig.

Þetta er brot úr frétt DV. Hér má lesa fréttina í heild sinni.