Ráðherra ferðamála hefur óskað eftir því við ferðamálaráð að ráðið geri tillögur um aðgerðir af hálfu stjórnvalda til að bregðast við þremur áskornunum sem ætla má að raski samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu um þessar mundir. Verkefnið er nánar skilgreint í bréfi ráðherra til ráðsins. Tekið er fram í erindinu að æskilegt sé að tillögur ráðsins séu útfærðar - séu ekki of almennar - og að tillögurnar beinist að aðgerðum sem raunhæft er að ráðast í án mikillar tafar.
Áskoranirnar og verkefnin sem ráðherra felur ráðinu eru þessi:
Möguleg misnotkun og / eða óeðlileg samkeppnisforskot í deilihagkerfinu á markaði fyrir gistingu.
Möguleg ólögmæt starfsemi og / eða óeðlilegt samkeppnisforskot erlendra aðila sem stunda ferðaþjónustu hér á landi - til að mynda fólksflutninga og leiðsögn.
Verðlagsþróun í erlendri mynt sem gera má ráð fyrir að komi verst niður á ferðaþjónustu á landsbyggðinni.
Ráðherra væntir svara ráðsins ekki síðar en fyrir lok ágústmánaðar á þessu ári.
Frá þessi segir í frétt frá Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytinu.
rtá