Así: víst svindla starfsmannaleigur

Forvígismenn Alþýðusambands Íslands undrast ummæli sviðsstjóra Ríkisskattsstjóra í fjölmiðlum þess efnis að ekkert bendi til þess að erlendar starfsmannaleigur og tengd fyrirtæki sniðgangi skatta og gjöld hér á landi. ASÍ þekki fjölmörg dæmi þess.

Sambandið sendi frá sér tilkynningu vegna þessa síðdegis þar sem kröfunni um að stjórnvöld taki á þessum málum er haldið á lofti, en þar er varað við þróun síðustu vikna og mánaða: \"Komið hefur í ljós að þessari starfsemi fylgja vandamál er tengjast undirboðum á vinnumarkaði og jafnframt er það staðreynd að erlent launafólk sem starfar hjá þessum fyrirtækjum er berskjaldað fyrir svindli enda eðli málsins skv. með takmarkaða þekkingu á þeim réttindum sem því eru tryggð með kjarasamningum og lögum á íslenskum vinnumarkaði,\" segir þar.

ASÍ segir að einnig hafi komið fram að þessi fyrirtæki hafi ekki verið að greiða skatta og skyldur til íslensks samfélags: \"Á þessar staðreyndir hefur formaður Framsýnar, stéttarfélags og og fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar bent, varað við afleiðingunum og hvatt til þess að við þeim verði brugðist af festu,\" segir í tilkynningunni.

Svo er bent á að í hádegisfréttum RÚV laugardaginn 7. nóvember hafi verið haft eftir sviðsstjóri fyrirtækjaskrár RSK að ekkert bendi til þess að íslensk fyrirtæki reyni að komast hjá því að greiða skatta og gjöld með því að útvista verkefnum til erlendra fyrirtækja sem veita þjónustu tímabundið hér á landi. Jafnframt hafi mátt skilja á sviðsstjóranum að lítið sé um erlend fyrirtæki með tímabundna starfsemi hér á landi: \"Alþýðusambandið er ósammála því sem ram kom í framangreindri frétt. Staðreyndirnar tala sínu máli. Jafnframt bendir ASÍ á mikilvægi þess að embætti RSK skoði málið nánar og taki ábendingar þeirra aðila alvarlega sem næst vinnumarkaðnum standa og búa yfir mikilvægum upplýsingum í þessum efnum,\" segir í tilkynningunni að lokum.