Así um fjárlögin: árás á tekjulága

Miðstjórn ASÍ gagnrýnir harðlega áhuga- og úrræðaleysi ríkisstjórnarflokkanna þegar kemur að hagsmunum og aðstæðum þeirra tekjulægstu í samfélaginu. Ríka fólkinu sé hlíft á meðan. 

Miðstjórnin sendi frá sér harðorða ályktun nú síðdegis: \"Enn er minnisstæð lækkun tekju- og eignaskatta stóreigna- og hátekjufólks og lækkun auðlindaskatta sem setti aukinn þrýsting á niðurskurð ríkisútgjalda, þ.m.t. heilbrigðismála. Þessi ríkisstjórn hækkar skatt á mat en lækkar skatta á lúxusvörur. Hún skerðir hækkanir á bótum almanna- og atvinnuleysistrygginga en lækkar skuldir stóreignafólks,\" segir þar. 

Miðstjórn undrast stórum að í því fjárlagafrumvarpi sem nú sé til umræðu standi ekki til að mæta nauðsynlegri fjárþörf heilbrigðiskerfisins vegna þeirra kjarasamninga sem gerðir hafa verið: \"Það mun óhjákvæmilega mun leiða til dýrari og verri þjónustu við þá sem þurfa læknisþjónustu. Fyrir liggur að nú þegar hefur  hópur lágtekjufólks ekki efni á að nýta sér þessa þjónustu. Á sama tíma er verið að undirbúa enn frekari markaðsvæðingu heilbrigðiskerfisins;\" segja forkólfar sambandsins.  

Það sama blasi við  varðandi hækkun bóta almannatrygginga: \"Þrátt fyrir að allir kjarasamningar sem ríkið hefur staðið að miði við að hækkun launa verði afturvirk frá og með 1. maí sl. og Kjararáð hafi hækkað laun alþingismanna og ráðherra frá og með 1. mars, hafnar ríkisstjórnin að hækka bætur almannatrygginga með sambærilegum hætti og nemur hækkun lægstu launa og miða við 1. maí. Á sama tíma leggur meirihluti efnahags- og skattanefndar til breytingar á tekjuskattsfrumvarpi fjármálaráðherra og sem heimila fulla samsköttun tekna hjóna/sambýlisfólks sem gæti lækkað tekjuskatt þeirra sem eru með meira en 1,4 milljón kr. á mánuði um allt að 75 þús. kr. á mánuði. Þessi aðgerð er talin kosta ríkissjóð um 3.500 milljónir króna á ári;\" segir í tilkynningu ASÍ. 

Hún endar með þessum orðum: \"Áhugaleysi ríkisstjórnarinnar á málefnum og aðstæðum tekjulágra fjölskyldna  endurspeglast einnig í húsnæðismálum. Mikil vinna hefur verið lögð í mótun tillagna um nauðsynleg úrræði, einkum verulega hækkun húsaleigubóta og nýtt félagslegt húsaleigukerfi. Breið samstaða náðist um þá niðurstöðu. Þrátt fyrir að ríkisstjórnin héti því að beita sér fyrir að lögfesta þessar breytingar á haustþingi, er fyrirséð að þessi mál muni dragast fram á næsta ár. Miðstjórn ASÍ lýsir fullri ábyrgð af þessum drætti á fjármála- og efnahagsráðherra, en fyrirséð er að þetta er forsendubrestur gagnvart endurskoðun kjarasamninga í febrúar.\"