Así stefnir á grimmar aðgerðir

\"Ég held við þurfum að beita dálítið grimmum aðgerðum til að rétta okkar hlut,\" sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands við setningu þings Starfsgreinasambands í gær og vísaði þar til launahækkana á opinberum vettvangi umfram þann almenna.

Hann metur það svo að upp sé komin \"óvænt og alvarleg staða á vinnumarkaði\" vegna launahækkana hjá hinu opinbera umfram launaþróun á almennum vinnumarkaði og eftir að  upp úr slitnaði í viðræðum um nýtt vinnumarkaðslíkan.

Hann sagði að tilraunin um nýtt líkan við gerð samninga á öllum sviðum atvinnulífsins hefði mistekist; ASÍ-félagar myndu aldrei kvitta upp á fyrirkomulag þar sem hækka ætti laun á opinberum vettvangi umfram annan launafólk í landinu.

Hann sagði á þinginu að hann hefði vonast til þess að geta kynnt þar nýja líkanið, en mikill metnaður hefði verið lagður í undirbúning þess að útbúa samræmda launastefnu yfir línuna sem hefði haft það markmið að lækka verðbólgu og vexti og auka kaupmátt.

Nú væri búið að snúa þessu á haus - og allir vissu hverjar afleiðingarnar yrðu.