Así segir afnám vörugjalds ekki virka

Verðlagseftirlit ASÍ telur að afnám vörugjalds um áramótin hafi ekki skilað sér í verði á bílavörum til neytenda, en eftirlitið skoðaði sérstaklega verðlagningu á bremsuklossum, stuðurum og stýrisendum og álíka varningi í október á síðasta ári og svo aftur í apríl í ár.


Eftirlitsmenn ASÍ segja að vörur sem áður báru 15% vörugjöld ættu að lækka um 15,2% þegar horft er til afnáms vörugjalda og lækkunar á vaski úr 25,5% í 24%. Í ljós hafi hins vegar komið að í 14% tilfella hækki verð eða sé óbreytt, í fjórðungi tilfella lækki verð um 0-4,9%. Með öðrum orðum sé verð í 81% tilfellum að lækka minna en sem nemi áhrifum af afnámi vörugjalda og lækkunar á vaski.


"Þegar einstök fyrirtæki eru skoðuð nánar," segir í tilkynningu frá ASÍ vegna þessa  "sést að hlutfallslega lækka Toyota, Hekla og Bílanaust verð oftast á bilinu 0-4,9%, Askja og Bernard oftast á bilinu 5-9,9%, Brimborg á bilinu 10-14,9% en algengasta hlutfallslega lækkunin hjá B/L og AB varahlutum er 15% eða meira. Það er því mjög misjafnt hvernig verð er að lækka á umræddu tímabili milli verslana."


ASÍ spyr að lokum: "Þessar niðurstöður vekja upp þá spurningu; hvers vegna er verð á bílavarahlutum er ekki að lækka meira en raun ber vitni?"