Así segir hættu á ofþenslu

 Miðstjórn Alþýðusambandsins gagnrýnir forgangsröðun í  fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. „Frumvarpið ber vissulega með sér bættan hag í ríkisrekstrinum en um leið blikka ljósin sem vara við ofþenslu í efnahagslífinu. Það er ljóst að eitt helsta verkefni ríkisstjórnarinnar á næstu misserum er að hemja vöxtinn svo ofþensla og verðbólga keyri ekki hér um þverbak með afleiðingum sem þjóðin þekkir því miður allt of vel,“ segir í ályktun miðstjórnar ASÍ.

Áherslur í fjárlagafrumvarpinu eru beinlínis rangar að mati miðstjórnar ASÍ. Velferðarþjónusta í landinu sitji á hakanum þar sem aukin framlög dekki fyrst og fremst miklar kostnaðarhækkanir. Framlög til þjónustu í velferðarkerfinu aukist ekki að raungildi „sem er dapurlegt þegar hagur þjóðarinnar fer batnandi, en ljóst er að endurreisa þarf velferðarþjónusta eftir hrun“.

Miðstjórn ASÍ telur að stór velferðarverkefni séu enn ófjármögnuð s.s. kostnaður vegna læknisþjónustu, endurskipulagning öldrunarþjónustu,  menntaúrræði fyrir þá sem hafi litla formlega menntun og þótt félagslegt húsnæðiskerfi sé jákvætt skref  dugi það ekki til.