Así segir afnám vörugjalds ekki skila sér

Forráðamenn Verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands fullyrða að afnám vörugjalds um síðustu áramót hafi varla eða jafnvel ekki skilað sér í vörverði í mörgum helstu byggingarvöruverslunum landsins.


Verðlagseftirlitið hefur fylgst með verðbreytingum á byggingavörum frá því í október á síðasta ári, en það telur að verð byggingaörum, sem áður báru 15% vörugjöld, ættu að lækka um 14% við afnám vörugjaldanna og þegar lækkun á virðisaukaskattinum úr 25,5% í 24% er tekin með í reikninginn ætti lækkunin að vera 15,2%. Þetta eigi við um gipsplötur, gólfefni, vaska og salernisskálar svo dæmi séu tekin. 


Eftirlitsmenn ASÍ segja að við skoðun á verðlagningu byggingarvöruverslana í október 2014 og í apríl 2015 hafi takmarkaðar verðlækkanir komið í ljós. Í 36% tilvika hafi vörurnar enn verið á sama verði og í fyrri mælingu, í 27% tilvika hafi verðið lækkað um 0-4,9% en aðeins í um þriðjungi tilvika hafi lækkunin verið meiri en 5%.  


Í tilkynningu frá ASÍ vegna þessa segir: "Bauhaus lækkaði ekki verð í tæplega 85% tilvika, Húsasmiðjan ekki í tæplega 45% tilvika og verðlækkanir í Byko voru innan við 5% í tæplega 90% tilvika."


Gleðitíðindin eru þó þessi: "Verslanirnar; Birgisson, Egill Árnason og Harðviðarval eru þær verslanir sem hlutfallslega oftast lækkuðu verð um 15% eða meira eða í nálægt 2/3 tilfella."