Miðstjórn Alþýðusambands Íslands sendi í dag frá sér ályktun þar sem stöðnuðu kerfi í mjólkuriðnaði er mótmælt og það sagt hvorki til hagsbóta fyrir almenning né framleiðendur. ASÍ vill aukna samkeppni, innflutning, draga úr styrkjum og afnema opinbera verðlagningu.
"Það hefur löngum verið skoðun miðstjórnar ASÍ að núverandi fyrirkomulag í mjólkuriðnaði sé hvorki besta leiðin til að bæta hag neytenda né að það skapi næga hvata fyrir framleiðendur til þess að auka samkeppnishæfni, framleiðni og lækka vöruverð," segir í tilkynningunni."Þvert á móti," segir þar áfram "hefur núverandi fyrirkomulag komið í veg fyrir að virkja þá hvata sem leiða til heilbrigðrar samkeppni sem kemur öllum til góðs. Nýleg dæmi, þar sem MS hefur kerfisbundið komið í veg fyrir innkomu nýrra aðila á markað gert stórum aðilum kleift að nýta, og í mörgum tilfellum misnota, sér markaðsráðandi stöðu til að koma í veg fyrir samkeppni."
Síðar segir: "Alþýðusamband Íslands hefur ítrekað ályktað að aukinn innflutningur landbúnaðarvara, minnkun framleiðslutengdra styrkja og afnám opinberrar verðlagningar geti bæði aukið framleiðni og samkeppnishæfni mjólkuriðnaðar og skilað ábata til framleiðenda og jafnt verið eina vörn sem neytendur hafa gegn þessum einokunartilburðum. Vert er að árétta að þessum sjónarmiðum hélt fulltrúi ASÍ fram árið 2003 í nefnd sem skipuð var af þáverandi landbúnaðarráðherra og hafði það hlutverk að móta nýja stefnu fyrir mjólkurframleiðslu hér á landi. Það voru hins vegar mikil vonbrigði þegar samningur um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu var loks undirritaður í kjölfarið að lítið tillit hafði verið tekið til tillagna mjólkurnefndarinnar. Miðstjórn ASÍ gagnrýndi þetta harðlega á sínum tíma."