Así krefst þess að flugfélagið play gangi til kjarasamninga um kjör starfsmanna sinna áður en þeir hefja starfsemi

Í tilkynningu sem ASÍ sendi frá sér í dag kemur fram að sambandið krefjist þess að flugfélagið Play gangi til til kjarasamninga um kjör starfsmanna sinna áður en það hefur sig til flugs. ASÍ segir enn fremur að það muni ekki það yfir íslenskt launafólk ganga að félagsleg undirboð og lögbrot fyrirtækja eins og Primera Air verði endurtekin eða látin átölulaus af stjórnvöldum.

„Gerð verður krafa um að félagið, eins og aðrir atvinnurekendur sem starfa hér á landi, gangi til kjarasamninga um kjör starfsmanna sinna áður en það hefur sig til flugs. ASÍ treystir því að hið nýja fyrirtæki ætli sér ekki að keppa á íslenskum flug- og ferðamarkaði á grundvelli félagslegra undirboða. ASÍ mun ekki láta það yfir íslenskt launafólk ganga að félagsleg undirboð og lögbrot fyrirtækja eins og Primera Air verði endurtekin eða látin átölulaus af stjórnvöldum,“ segir í tilkynningu frá ASÍ.

Að baki PLAY stendur hópur fólks hafa áður starfað hjá flugfélögum á borð við WOW air og Air Atlanta. Þá stendur til að ráða fjölda starfsmanna á næstu vikum bæði á skrifstofu félagsins og áhafnarmeðlimi. Forstjóri PLAY er Arnar Már Magnússon. Flogið verður á Airbus A321 flugvélum sem leigðar verða til félagsins og taka um 200 farþega í sæti. Gert er ráð fyrir sex vélum í rekstri næsta sumar og að flotinn vaxi í tíu vélar innan þriggja ára. Fyrst um sinn verður flogið innan Evrópu en stefnt er að því að bæta við áfangastöðum í Norður Ameríku á komandi vormánuðum.